Körfuknattleiksdeild Grindavíkur ætlar nú að bjóða uppá morgunæfingar fyrir alla iðkendur, 12 ára og eldri. Lewis Clinch mun sjá um þjálfun á þessum æfingum. Lewis hefur getið sér gott orð í einstaklingsþjálfun og því er þetta kjörið tækifæri fyrir krakkana okkar að taka framförum undir handleiðslu eins allra besta leikmanns Domino’s deildarinnar.
Æfingarar verða á miðviku- og föstudögum milli kl. 06:00-07:00.