Lokaumferð Domino’s deildar karla verður leikin í kvöld og geta Grindvíkingar tryggt sér 4. sætið og heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar með sigri á nýliðum Skallagríms í Mustad-höllinni. Nýliðarnir sitja í 11. sæti og eru þegar fallnir en vilja eflaust enda sína þátttöku í deildinni með látum og munu ekki láta sigurinn af hendi baráttulaust.
Leikurinn hefst kl. 19:15 og hvetjum við Grindvíkinga til að fjölmenna og styðja okkar lið til sigurs!
Staðan í deildinni er ótrúlega jöfn fyrir þessa lokaumferð, en liðin í 5.-9. sæti geta öll skipt um sæti og þurfa nágrannar okkar í Njarðvík t.a.m. að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum til að tryggja sæti sitt í úrslitakeppninni. Óskar Ófeigur Jónsson hjá Fréttablaðinu er búinn að taka saman möguleika kvöldsins: