Lokahóf yngri flokka á fimmtudaginn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Lokahóf yngri flokka körfuknattleiksdeildar UMFG fer fram í Gjánni fimmtudaginn 19. maí kl 17:00. Allir iðkendur í 1.-4. bekk fá viðurkenningarskjal fyrir afrakstur vetrarins. Einstaklingsverðlaun verða veitt fyrir iðkendur í mb.11 ára – unglingaflokks. Pylsupartý verður að lokinni verðlaunaafhendingu fyrir utan íþróttahúsið.

Körfuknattleiksdeildin veitir einstaklingsverðlaun fyrir góð gildi sem gera þau að betri leikmönnum og félagsmönnum í framtíðinni. t.d eru veittar viðurkenningar fyrir framfarir, dugnað, ástundun, jákvætt viðhorf og fleira. Verðlaunin eru misjöfn á milli flokka, en hver og einn þjálfari ákveður hvað hann vill verðlauna fyrir í sínum flokk.

Árangur yngriflokka félagsins hefur verið stórkostlegur á árinu og því hvetur Unglingaráð körfuknattleiksdeildarinnar alla iðkendur, foreldra sem og aðra að koma og fagna með okkur uppskerunni á körfubolta árinu sem er að líða.

Áfram Grindavík!