Lokahóf körfuknattleiksdeildarinnar á föstudaginn

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Lokahóf körfuknattleiksdeildar UMFG verður haldið föstudaginn 5. maí í Gjánni kl. 19:30. Miðaverð er litlar 2.500 kr og eru allir velkomnir. Tímabilið verður gert upp, góðar veitingar og mikið hlegið. Stjórnin lofar miklu stuði. Veislustjóri verður Gummi Ben, dýrindis matur frá Höllu og mun Sindri Freyr Guðjónsson mæta og taka nokkur lög. Húsið opnar klukkan 19.00

Hægt er að panta miða hjá Ásu í síma 894-8743.