Lokahóf körfunnar verður haldið núna á laugardagskvöldið í salnum í nýja íþróttamannvirkinu. Húsið opnar kl. 19:00. Þetta verður með svipuðu sniði og í fyrra þ.e.a.s góður matur að hætti Bíbbans, skemmtiatriði frá stjórn og liðunum, verðlaunaafhending og almennt partý stuð. Stuðningskortahafar fá að sjálfsögðu frítt í stuðið en það verða ekki margir miðar í almennri sölu. Þeir sem hafa eindreginn áhuga á að mæta geta hringt í Lolla í 7752166 fyrir nánari upplýsingar. Svo verður bara gaman. Ljúkum þessu tímabili með góðu partýi.
Stjórnin