Lokahóf körfunnar verður haldið nú á fimmtudaginn í salnum í nýja íþróttamannvirkinu. Þetta verður með svipuðu sniði og í fyrra þ.e.a.s góður matur að hætti Bíbbans, skemmtiatriði frá stjórn og liðunum, verðlaunaafhending og almennt partý stuð. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa miða á lokahófið geta sett sig í samband við Gauta í síma 8401719 en það verða ekki margir miðar í almennri sölu. Stuðningskortahafar fá að sjálfsögðu frítt í stuðið og svo verður bara gaman. Ljúkum þessu tímabili með góðu partýi.
Stjórnin