Leikjaskrá körfunnar 2014-15 komin á netið og herrakvöld á föstudaginn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Leikjaskrá körfuknattleiksdeildar Grindavíkur fyrir veturinn 2014-15 hefur nú verið dreift inn á öll heimili í Grindavík en nú er hún einnig aðgengileg á netinu. Hægt er að nálgast hana með því að smella hér.

Næstu leikir Grindavíkurliðanna eru báðir á útivelli. Stelpurnar sækja Keflavík heim í kvöld og strákarnir KR á morgun. Það vill svo skemmtilega til að þetta eru þau tvö lið sem spáð var titlunum í báðum deildum svo að það er ljóst að hér eru tvær hörku rimmur framundan.

Þá er einnig vert að minna á Herrakvöld körfuboltans sem haldið verður næstkomandi föstudagskvöld. Herlegheitin verða haldin á Sjómannastofunni Vör og sennilega ekki nema 100 miðar í boði á þennan stórkostlega viðburð. Vernharð Þorleifsson (Venni Páer) verður veislustjóri og ræðumaður verður enginn annar en „jafnhataðasti” Keflvíkingurinn í körfunni, Sigurður Ingimundarson, og mun hann fara yfir rimmurnar sem hann átti við okkur Grindjánana ásamt því að monta sig yfir því að hafa búið hér í Grindavík. Þá hefur því verið hvíslað að enginn annar en Njarðvíkingurinn Teitur Örlygsson ætli einnig að láta sjá sig.

Hjálmar Hallgrímsson, fyrrverandi körfuknattleiksmaður, fyrrverandi knattspyrnumaður, núverandi lögreglumaður án hríðskotabyssu og núverandi politíkus (sem einmitt átti nokkrar rimmurnar við Sigga) stígur á stokk til þess að segja okkur frá sínum rimmum við Keflvíkingana og ýmsu fleira.

Hápunkturinn er svo þegar að matarveislan verður boðin upp en Einhamar Seafood hreppti hnossið síðast og segir sagan að Stebbi ætli sér hana aftur. Að sjálfsögðu geta menn bundist bandalagi við að næla sér í þessa mögnuðu veislu sem er allt í senn, rannsóknarför um heima matarins sem og menningarupplifun með keppnisívafi.

Magnað kvöld í uppsiglingu og betra fyrir alla aðila að taka kvöldið frá og gera sig klára. Miðaverði stillt í einstakt hóf eða litlar 4.000 kr en það telst víst ekki mikið fyrir svona skemmtidagskrá, hreindýrabollur og saltfiskrétt að hætti Gauta.

Miðasala er í Olís.