Kræktu í brons á Reykjavík International Games um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Þeir Guðjón Sveinsson og Sigurpáll Albertsson kepptu fyrir hönd Grindavíkur á Reykjavík International Games um helgina. Þar var aðeins keppt í fullorðinsflokki (15+) og Guðjón og Sigurpáll báðir á pall en þeir unnu brons í sínum þyngdarflokkum.

Guðjón Sveinsson fékk brons í -66 kg flokki þar sem voru 5 keppendur. Hann vann tvær glímur, aðra á fastataki en hina á armlás, og tapaði tveimur, annarri á hengingu en í seinustu glímunni var hann dæmdur úr leik fyrir ólöglega sókn.

Sigurpáll Albertsson fékk brons í -90 kg flokki en þar voru 4 keppendur. Sigurpáll tapaði fyrstu glímunni á kasti, annari á fastataki, en vann svo bronsglímuna með kasti.