Körfuboltastelpurnar efstar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Kvennalið Grindavíkur í körfubolta sem tekur nú þátt í B-deild (1. deild) hefur byrjað vel og er í efsta sæti eftir 5 umferðir. Liðið hefur unnið fjóra leiki en tapað einum. Það var mikið um dýrðir í Smáranum í Kópavogi síðasta föstudag. Hamborgarar voru grillaðir í andyri Smárans og mikil og flott umgjörð á staðnum. Stelpurnar okkar voru mættar í heimsókn og spiluðu sinn fimmta leik í 1. deildinni í vetur.

Leikurinn fór vel af stað og opnaði Ingibjörg Sigurðardóttir leikinn með góðri þriggja-stiga körfu. Fyrsti leikhluti einkenndist af miklu basli í sóknarleik okkar stelpna og gekk erfiðlega að koma boltanum í körfuna þrátt fyrir urmul góðra tækifæra. Varnarleikurinn var hins vegar til fyrirmyndar og virkaði pressuvörn stelpnanna ágætlega. Fyrrihálfleikur einkenndist af basli í sóknarleiknum og staðan í hálfleik var 22-29 okkar stelpum í vil.

Stelpurnar byrjuðu seinni hálfleik ekki næganlega vel og í stöðunni 30-32 tók þjálfari liðsins leikhlé. Það hafði góð áhrif á stelpurnar og tóku þær góðan kipp. Varnarleikurinn var mjög góður á þessum kafla og fylgdu margar auðveldar körfur í kjölfarið. Stelpurnar fylgdu þessum kafla vel eftir og lönduðu öruggum sigri 49-68. Jeanne Lois var öflug í seinnihálfleik og stjórnaði leik liðsins með miklum sóma. Ingibjörg Sigurðardóttir átti góða spretti en var óheppin með villur. Jóhanna Rún var góð í vörninni og hirti mörg góð fráköst, hún var einnig óheppin með villur. Helga Arnberg og Sandra komu sterkar inn af bekknum og skiluðu sínu. Berglind Anna var öflug að vanda og skilaði sínu bæði í vörn og sókn.

Stigahæstar: Jeanne Lois 15 stig (allt í seinnihálfleik), Ingibjörg og Berglind Anna 13 stig hver og Yrsa 8 stig.

Næsti leikur hjá stelpunum er á miðvikudaginn eftir viku á moti Skallagrím hérna heima og hefst leikurinn kl. 20:00.