Körfuboltaskóli meistaraflokks karla um helgina

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Dagana 14. 15. og 16. sept. munu strákarnir í meistarflokki halda körfuboltaskóla fyrir krakka á grunnskólaaldri. Í skólanum verður farið í helstu undirstöðuatriði körfuboltans undir leiðsögn þjálfara og leikmanna meistaraflokks karla. Það kostar 4000 kr. á barn. Systkinaafsláttur verður í boði, 2000 kr. fyrir annað systkinið og frítt fyrir þriðja.

Skólanum verður skipt í tvennt. 1.-5. bekkur verður saman og 6.-10. bekkur saman.

Föstudaginn 14. sept.
1-5 bekkur, 16:00-17:30
6-10 bekkur, 17:40-19:10

Laugardaginn 15. sept. og sunnudaginn 16. sept. 
1-5 bekkur, 10:00-11:30
6-10 bekkur, 11:40-13:10

Skráning fer fram á netfanginu umfgkarfa@gmail.com. Taka þarf fram nafn og í hvaða bekk barnið er. Ef einhverjar spurningar vakna svarst þær einnig á þessu netfangi.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Strákarnir í meistaraflokki karla