Knattspyrnuskóli UMFG – tvö námskeið eftir

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Knattspyrnuskóli UMFG hefur verið starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur. Námskeiðin eru opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða fjögur viku námskeið í júní og þrjú viku námskeið í ágúst. Á námskeiðunum verður iðkendum skipt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi.

Enn eru tvö námskeið eftir:

10.ágúst – 14.ágúst
17.ágúst – 21.ágúst

Eldri fyrir hádegi (5.bekkur- 8.bekkur) kl.10.00
Yngri eftir hádegi (1.bekkur-4.bekkur) kl.13.00

Skráning á námskeiðin er í Gulahúsinu.
Verð á námskeið er 2.500 kr.
Þátttakendum verður svo boðið á veglega
lokahátíð knattspyrnuskólans í lok sumars.

Umsjón með skólanum hafa:

Ægir Viktorsson
yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Grindavíkur,

Sara Hrund Helgadóttir
leikmaður m.fl. kvenna,

Óli Stefán Flóventssonþjálfari m.fl kk og 3.fl kk auk annarra gestaþjálfara.