Knattspyrnunámskeið UMFG og Lýsi helgina 30. janúar – 1. febrúar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Knattspyrnudeild UMFG og Lýsi heldur knattspyrnunámskeið fyrir stráka og stelpur helgina 30. janúar – 1. febrúar.

Með stolti kynnum við til sögunnar knattspyrnuskóla knattspyrnudeildar UMFG og Lýsis 2015 fyrir 3. – 5. flokk stráka og stelpna.

Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn fái að njóta sín í knattspyrnuskólanum. Unnið er í litlum hópum og er markmiðið að hver og einn fá góða innsýn í æfingaheim þeirra sem hafa atvinnu af því að stunda knattspyrnu. Skólinn er ekki síður fyrir markmenn en útileikmenn, enda er boðið upp á sérstaka markmannsþjálfun.

Boðið verður uppá úrvals dagskrá sem inniheldur m.a. æfingar, fyrirlestra, mat, sund, diskó og fleira. Gisting í boði fyrir þátttakendur fyrir utan Grindavíkur í Hópsskóla.

Verð fyrir þessa þrjá daga er 6000 kr.

Kennarar og fyrirlesarar:

Heimir Hallgrímsson A-landsliðsþjálfari karla – Freyr Alexanderson A-landsliðsþjálfari kvenna – Tommy Nielsen m.fl þjálfari Grindavíkur – Ólína Viðarsdóttir leikmaður Fylkis – Nihad Cober Hasecic þjálfari hjá Sindra – Jankó þjálfari hjá Grindavík- Bentína Frímannsdóttir íþróttakona Grindavíkur 2014 – Alfreð Jóhannsson þjálfari m.fl Ægis -Daði Lárusson markmannsþjálfari.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplýsingar og skráning með nafni og kennitölu berist á netföngin aegir@umfg.is eða olistefan@umfg.is
fyrir 25. janúar