Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að stýra daglegum rekstri félagsins.
Starfsvið felur í sér m.a.:
• Daglegur rekstur knattspyrnudeildar.
• Fjármála- og starfsmannastjórnun.
• Stefnumótun og áætlanagerð.
• Samningar og samskipti við samstarfsaðila félagsins.
• Undirbúningur og framkvæmd fjáraflana og viðburða á vegum félagsins.
• Samskipti við félagsmenn, foreldra og iðkendur.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Þekking og reynsla af rekstri, kostur ef um er að ræða íþróttafélag.
• Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur, frumkvæði og útsjónarsemi.
Upplýsingar veitir, Gunnar Már Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, sími: 865-2900 netfang: gunnar.gunnarsson@sjova.is. Umsókn auk ferilsskrár skal skilað á netfangið gunnar.gunnarsson@sjova.is, eigi síðar en 15. febrúar 2019.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.