Kjör á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur 2017

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Kjörið á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur fyrir árið 2017 fer fram í Gjánni á gamlársdag kl. 13:00. Einnig verða veittar viðurkenningar til einstaklinga fyrir Íslandsmeistaratitla, fyrsta landsleik auk sérstakra hvatningarverðlauna sem veitt eru ungum og efnilegum íþróttamönnum Grindavíkur. Jafnframt verða ýmis önnur verðlaun afhent.

Allir velkomnir.

Með kærri kveðju,

Sigurður Enoksson, formaður UMFG
Þórunn Alda Gylfadóttir, formaður frístunda- og menningarnefndar Grindavíkurbæjar