Jón Axel stigahæstur í sigri Davidson

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Jón Axel Guðmudnsson fór fyrir lið Davidson í gær þegar liðið vann yfirburðasigur á Fordham, 75-45. Jón var stigahæstur sinna manna með 18 stig, tók 6 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Þá var hann með 50% nýtingu fyrir utan þriggja, 3 körfur í 6 tilraunum, og tapaði aðeins einum bolta á þeim 34 mínútum sem hann lék. Eftir þennan sigur er Davidson í 2.-3. sæti í A-10 deildinni.

Jón Axel hefur verið í fantaformi með Davidson í vetur, og er að skora 14,6 stig að meðaltali í leik, taka 6,4 fráköst og gefa 4,6 stoðsendingar. 

Tölfræði tímabilsins má skoða nánar á vefsíðu Davidson.