Jólasýning fimleikadeildar UMFG á sunnudaginn

Fimleikar Fimleikar, Íþróttafréttir

Fimleikaiðkendur í Grindavík bjóða fjölskyldu, vinum og bæjarbúum öllum til fimleikasýningar í Íþróttamiðstöð Grindavíkur sunnudaginn 3. desember klukkan 13:00. Húsið opnar fyrir gesti kl 12:45 og aðgangseyrir er 1000 krónur fyrir 16 ára og eldri.

Að sýningu lokinni geta gestir keypt köku með kaffinu af kökubasar iðkenda en Jólasýningin er eina fjáröflun deildarinnar og ágóði sýningarinnar verður nýttur til áhaldakaupa.