Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Grindavík, var valinn þjálfari ársins á lokahófi KKÍ í hádeginu í dag. Þá var Ólafur Ólafsson valinn í 5 manna úrvalslið deildarinnar. Eru þessar viðurkenningar sannkallaðir rósir í hnappagöt þeirra bræðra og óskum við þeim til hamingju með heiðurinn.
Úrvalslið Dominos deildar karla: 2016-2017:
Matthías Orri Sigurðarson Félag: ÍR
Logi Gunnarsson Félag: Njarðvík
Jón Arnór Stefánsson Félag: KR
Ólafur Ólafsson Félag: Grindavík
Hlynur Bæringsson Félag: Stjarnan
Besti leikmaður Dominos deildar karla 2016-2017:
Jón Arnór Stefánsson Félag: KR
Besti erlendi leikmaður Dominos deildar karla 2016-2017:
Amin Stevens Félag: Keflavík
Besti þjálfari Dominos deildar karla 2016-2017:
Jóhann Þór Ólafsson Félag: Grindavík
Besti ungi leikmaður Dominos deildar karla 2016-2017:
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson Félag: KR
Besti varnarmaður Dominos deildar karla 2016-2017:
Hörður Axel Vilhjálmsson Félag: Keflavík