Grindvíkingar sóttu aðeins 1 stig á Selfoss í gær í miklum baráttuleik sem lauk með 1-1 jafntefli. Leikurinn var markalaus fram á 72. mínútu þegar Alexander kom okkar mönnum yfir en Selfyssingar jöfnuðu leikinn úr vítaspyrnu á 86. mínútu. Grindvíkingar sitja þó enn á toppi deildarinnar þar sem KA menn léku ekki í gær. Þegar 4 umferðir eru eftir af deildinni eru Grindvíkingar með 38 stig á toppnum, 9 stigum á undan Keflavík sem sitja í þriðja sæti. Pepsi-deildin er því sannarlega innan seilingar.
Grindavík á eins og áður sagði 4 leiki eftir í ár sem eru eftirfarandi:
Grindavík – Fjarðabyggð laugardaginn 3. september kl. 14:00
Þór – Grindavík laugardaginn 10. september kl. 14:00 (leikurinn verður í beinni á Stöð 2 sport)
KA – Grindavík laugardaginn 17. september kl. 14:00 (leikurinn verður í beinni á Stöð 2 sport)
Grindavík – Fram laugardaginn 24. september kl. 14:00
Mynd: Víkurfréttir