Íþróttaskóli UMFG hefst laugardaginn 10.september. Íþróttaskólinn er fyrir börn á leikskólaaldri sem vilja auka hreyfigetu, jafnvægi, styrk, úthald og boltafærni. Salnum er skipt í tvö aldurskipt æfingasvæði. Í öðrum salnum er áhaldahringur þar sem börnin gera ýmsar æfingar og í hinum salnum er notast við bolta og ýmsar þrautir.
Æfingar fara fram í íþróttahúsinu alla laugardaga kl 10:00-10:40 og foreldrar fylgja börnum sínum á æfingum.
Námskeiðið stendur yfir í þrjá mánuði og námskeiðsgjald er 5.000 kr.
Skráningar fara fram á fyrstu æfingum, en einnig er hægt að senda upplýsingar á tölvunetfangið petrunella@grindavik.is (nafn greiðanda/foreldri og kennitala, nafn barns og kennitala).
Mjög mikilvægt er að skráningar fari einnig í gegnum Nóra kerfið. Hadda verður til staðar fyrir þá sem þurfa aðstoð við að skrá börnin sín eða eru ekki kunn því kerfi.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Umsjónamaður íþróttaskólans er Petrúnella Skúladóttir.