Íslandsmeistarar Þórs nokkrum númerum of stórir

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavíkurkonur fóru ekkert alltof vel af stað í Pepsi-deildinni þetta árið en þær tóku á móti Íslandsmeisturum Þórs/KA í fyrsta leik tímabilsins á laugardaginn. Gestirnir komust í 0-1 strax á 7. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Í seinni hálfleik opnuðust aftur á móti flóðgáttir við mark Grindavíkur og lokatölur leiksins urðu 0-5, gestunum í vil.

Víkurfréttir gerðu leiknum góð skil:

Grindavík tók á móti Þór/KA í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í dag. Veðrið var ágætt á Grindavíkurvelli, lognið fór hratt yfir og vindurinn stóð beint á stúkuna, sólin skein þó í fyrri hálfleik og snjórinn lét ekki sjá sig en það hafði verið smá ofankoma fyrr um daginn í Grindavík.

Leikurinn byrjaði rólega en Norðankonur létu vita af sér á 7. mínútu þegar Sandra María Jessen skoraði fyrsta mark leiksins og Þór/KA komst í 0-1. Þór/KA pressaði stíft allan leikinn en Grindavík varðist gegn hverri sókninni á fætur annari. Markmaður Grindavíkur, Viviane átti góðan leik í fyrri hálfleik í markinu og varði vel á köflum. Þór/KA leiddi 0-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Þór/KA pressaði stíft í byrjun fyrri hálfleiks og borgaði sú pressa sig því á 55. mínútu skora þær úr hornspyrnu. Fjórum mínútum síðar skorar Þór/KA og staðan orðin 0-3 fyrir gestina. Grindavík gerði breytingu á liði sínu á 68. mínútu þegar Eva María Jónsdóttir kom inn á fyrir Elenu Brynjarsdóttur. Ekki dró til tíðinda í leiknum fyrr en á 80. mínútu en þá skorar Sandra María Jessen og staðan því orðin 0-4 og Grindavík með fá svör við sóknarleik Þórs/KA. Lokamark Þórs/KA kom á 90. mínútu þegar Sandra María Jessen skorar sitt þriðja mark og tryggði Þór/KA 0-5 sigur í sínum fyrsta leik.

Myndasafn – Víkurfréttir (Rannveig Jónína)