ÍG mætir með leynivopn gegn Keflavíkurhraðlestinni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

ÍG mætir B-liði Keflavíkur í bikarkeppni KKÍ í Röstinni föstudaginn 29. nóvember kl. 19:15. Liðin mættust einnig í bikarnum í fyrra í sláturhúsinu í Keflavík þar sem gamla hraðlestin hafði betur gegn sjóurunum úr Grindavík.

„Við ÍG-menn munu ekki láta það gerast aftur og erum ekkert hræddir þótt þeir hafi leitað til Damons nokkurs Johnsonar, við höfum fundið ráðdýrt leynivopn til að stöðva hann. Við hvetjum alla sem hafa gaman af skemmtilegum körfubolta að mæta í Röstina,” segir í tilkynningu frá ÍG.