Þriðjudaginn 29.nóvember kl. 19:30 mun forvarnarnefnd UMFG standa fyrir fyrirlestri í Hópskóla með hinum frábæra Sigurbirni Árna Arngrímssyni lífeðlisfræðingi á sviði þjálfunar. Fyrirlesturinn er ætlaður íþróttaiðkendum í 7.bekk og eldri. Þjálfarar og foreldrar eru hvattir til að mæta!
Fjallað verður m.a. um matarræði, orkudrykkjanotkun, ofþjálfun og flest sem viðkemur íþróttaiðkun.
Sýnum samstöðu og fjölmönnum,
Forvarnarnefnd UMFG