Körfuknattleikslið Vestra samdi við þá Hinrik Guðbjartsson og Nökkva Harðarson síðastliðinn föstudag. Hinrik og Nökkvi eru uppaldir í Grindavík og urðu Íslandsmeistarar með unglingaflokki félagsins í síðasta mánuði. Nökkvi lék þó einnig með meistaraflokki KFÍ, sem gengur nú undir nafninu Vestri. Hinrik lék 22 leiki með meistaraflokki Grindavíkur á síðasta tímabili auk þess sem hann var lykilleikmaður unglingaliðsins.
Mynd og texti: mbl.is