Helgi Jónas verður aðstoðarþjálfari

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Körfuknattleiksdeildin tilkynnti í gærkvöldi að Helgi Jónas Guðfinnsson hefði verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla til tveggja ára. Í frétt deildarinnar segir að Helgi Jónas sé frábær viðbót inn í þá uppbyggingu sem er að eiga sér stað hjá deildinni. Það er ljóst að undirbúningur fyrir næsta tímabil er á fullu hjá stjórn körfuknattleiksdeildarinnar því áfram má vænta frétta frá félaginu. Vefsíðan óskar bæði körfuknattleiksdeild UMFG sem og Helga Jónasi til hamingju með ráðninguna. 

Mynd: t.v. Sigurður Gíslason stjórnarmaður, Helgi Jónas Guðfinnsson og Ingibergur Ólafarson framkvæmdastjóri.