Haustmót yngri iðkenda í júdó 2018 – breytt dagskrá

Judo Íþróttafréttir, Judó

Haustmót JSÍ í yngri aldursflokkum þ.e. U21/U18/U15/U13 verður haldið í íþróttahúsinu í Grindavík laugardaginn 6. október. Vegna mikillar þátttöku verðum við að byrja örlítið fyrr en við ætluðum en sextíu og fimm keppendur eru skráðir til leiks og hefst mótið kl. 10:30 í aldursflokkum U13 og U15  og lýkur þeim flokkum um kl. 11:30. Þá hefst keppni í aldursflokkum U18 og U21 árs og ætti henni að ljúka um kl. 15:00. Vigtun fyrir U13 og U15 er frá 9:30-10:00 og geta U18 og U21 líka vigtað sig þá en annars er þeirra vigtun frá 10:30-11:00.  Hér er keppendalistinn.