Hækkun æfingagjalda UMFG

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Nú hefur verið ákveðið að Ungmennafélag Grindavíkur hækki æfingagjöld fyrir skólabörn fædd árið 2007-1997. Ákveðið hefur verið að æfingagjaldið verði kr 22.500 á barn fyrir allt árið 2013 og má barnið æfa eins margar íþróttir og það vill. Æfingagjöldin eru fyrir tímabilið janúar – desember ár hvert.  

Fyrri hluti æfingagjaldanna (10.000 kr.) hafa nú þegar verið settir inn í heimabanka hjá foreldrum og var eindagi á þeim 30.06.2013. Við minnum þá foreldra sem eiga eftir að greiða að hægt er að greiða inn á reikninginn með því að opna hann í heimabanka og millifæra upphæðina inn að vild.

Síðari hluti æfingagjaldanna fer því að berast inn á heimabanka foreldra að upphæð 12.500 kr.

Ákveðið hefur verið að börn sem eru að byrja í 6 ára bekk í haust eigi að greiða 10.000 kr. út árið 2013 og verður það innheimt eins og venjulega með seðli á foreldra barnsins í heimabanka þeirra þegar líður á haustið.

Ungmennafélag Grindavíkur býður upp á:

· Fimleika

· Júdó

· Knattspyrnu

· Körfuknattleik

· Sund

· Taekwondó

Ekki verða veittir neinir afslættir af æfingagjöldum þar sem þau eru mikið niðurgreidd.

Starfsmaður UMFG tekur við greiðslum á æfingagjöldum í húsi UMFG (bláa útistofa við grunnskólann) mánudaga og fimmtudaga milli kl. 14-18, einnig er hægt að leggja inn á reikning UMFG 0143-26-924 kt. 420284-0129. Hægt er að hafa samband við starfsmann á þessum dögum í síma 426-7775 á sama tíma og opið er og einnig hægt að semja um greiðslur og gera samning við starfsmann um greiðsludreifingu.