Kyu-mót 2012 í júdó var haldið í ÍR heimilinu laugardaginn 11. febrúar og mættu þrír Grindvíkingar til leiks, þeir Marcin Ostrowski, Guðjón Sveinsson og Sigurpáll Albertsson og unnu þeir allir sína flokka.
Marcin fékk gull í -55kg flokki 13-14 ára.
Guðjón fékk gull í -66kg flokki 17-19 ára.
Sigurpáll fékk gull í -90kg flokki fullorðna (15+).
Marcin keppti í tveimur glímum í þriggja manna flokki. Í fyrri glímunni var mótherji hans dæmdur úr leik fyrir ólöglegt bragð og í seinni glímunni vann hann á fastataki.
Guðjón keppti einnig í tveimur glímum í þriggja manna flokki. Fyrri glímuna vann hann á stigum en þá seinni á fastataki.
Sigurpáll keppti í fullorðinsflokki þar sem aðeins tveir keppendur voru í hans flokki og þeir færðir upp. Hann vann fyrstu glímuna á kasti, aðra á fastataki og þá þriðju á kasti.