Glæsilegt Jólaskákmót var haldið í fimmta sinni á vegum Samsuð og Krakkskákar laugardaginn 17. desember síðastliðinn. Mótið var haldið í Gerðaskóla og 48 keppendur mættu til leiks. Þeir voru úr flestum bæjarfélögum á Suðurnesjum. Grindvíkingar, Njarðvíkingar og Garðbúar voru fjölmennastir þátttakanda. Skemmst er frá því að segja að Grindvíkingar tóku efsta sætið í öllum flokkum nema flokki eldri pilta en þar varð Hjörtur Klemensson í 2. sæti. Glæsilegur árangur hjá okkar krökkum.
Nettó gaf glæsilega happadrættisvinninga í lok mótsins eins og vanalega á þessu skákmóti. Keppnin var spennandi allt fram á síðustu stundu.
Sigurvegarar í yngri flokki stúlkna:
1. Svanhildur Róbertsdóttir   Grindavík
2. Birta Eiríksdóttir  Grindavík
3. Ólöf Bergvinsdóttir Grindavík

Þær eru einnig núverandi Íslandsmeistarar í liðakeppni grunnskóla yngri stúlkur.
Sigurvegarar í yngri flokki pilta:
1.	Sigurður Bergvin Ingibergsson    Grindavík
2.	Andrés Kristinn Haraldsson    Reykjanesbæ
3.	Hjörtur Líndal Jónsson       Garði
Sigurvegarar í eldri stúlkur:
1.	Nadía Arthúrsdóttir       Grindavík
2.	Lovísa Ólafsdóttir           Sandgerði
3.	Aþena Rún Helgadóttir     Sandgerði
Sigurvegarar í eldri pilta:
1.	Sólon Siguringason Reykjanesbær
2.	Hjörtur Jónas Klemensson Grindavík
3.	Róbert Birmingham  Reykjanesbær

