Grindvíkingar fyrstir til að leggja Val í sumar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindvíkingar færðu Valsmönnum fyrsta tap þeirra í sumar á Grindavíkurvelli í gær, en Andri Rúnar Bjarnason skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Grindavíkur. Andri hefur heldur betur verið á skotskónum í síðustu leikjum og er kominn með 5 mörk. Eftir þennan sigur er Grindavík í 3. sæti deildarinnar með 10 stig þegar 5 umferðir eru að baki.

Fótbolti.net var að sjálfsögðu með fréttaritara, Bjarna Þórarinn Hallfreðsson. á staðnum sem gerði leiknum góð skil.

Frábært myndasafn á Fótbolta.net eftir Benóný Þórhallsson.

Viðtal við Óla Stefán eftir leik:

Viðtal við Gunnar Þorsteinsson eftir leik: