Grindavíkurkonur eru, líkt og karlaliðið, á fullu í úrslitakeppninni í körfuknattleik. Þær mæta liði Þórs á Akureyri á heimavelli í kvöld kl. 19:15. Staðan er 2-0 fyrir Grindavík. Stúlkurnar eru því einum leik frá því að komast áfram í næstu umferð um baráttu í úrvaldsdeild í haust. Það er því mikið í húfi hjá stelpunum sem þurfa á stuðningi að halda í kvöld.
Áfram Grindavík!
Mynd með frétt: Karfan.is