Grindavík spáð fallsæti í Pepsi-deild karla

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Spekingar Fótbolta.net eru byrjaðir að birta spá sína fyrir Pepsi-deildina 2017, en þeir spá Grindavík ekki mjög góðu gengi í sumar. Grindavík fékk aðeins 19 stig í spánni í ár sem dugar aðeins í 11. sætið af 12. Umfjöllun Fótbolta.net er ansi ítarleg og má lesa hana í heild sinni hér að neðan:

Um liðið: Grindvíkingar eru mættir aftur í Pepsi-deildina eftir að hafa síðast leikið þar sumarið 2012. Grindvíkingum var spáð 6. sætinu í Inkasso-deildinni í fyrra en þeir stimpluðu sig inn í toppbaráttuna í byrjun móts og litu ekki til baka eftir það.

Þjálfari – Óli Stefán Flóventsson: Óli Stefán spilaði með Grindavík í áraraðir og er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu. Eftir að hafa þjálfað Sindra á Höfn í Hornafirði í fimm ár þá kom Óli aftur til Grindavíkur sem aðstoðarþjálfari sumarið 2015. Um haustið tók Óli við sem aðalþjálfari og hann fór upp um deild á sínu fyrsta ári sem slíkur. Milan Stefán Jankovic, sem hefur verið þjálfari í Grindavík svo lengi sem elstu menn muna, er síðan aðstoðarþjálfari.

Styrkleikar: Grindvíkingar spila mjög skemmtilegan fótbolta og sóknarleikurinn var aðalsmerki liðsins í fyrra. Grindavík skoraði 50 mörk í Inkasso-deildinni í fyrra og margir leikmenn liðsins eru duglegir að skora. Í vetur hafa Grindvíkingar ekkert gefið eftir heldur hafa þeir haldið áfram að skora en Óli Stefán og Milan Stefán vinna vel saman og hafa búið til skemmtilegan leikstíl hjá liðinu. Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Sam Hewson komu til Grindavíkur frá Íslandsmeisturum FH í vetur og þeir koma með sigurhugarfar til liðsins.

Veikleikar: Breiddin í leikmannahópnum er mjög lítil og ekki má mikið út af bregða í sumar hvað varðar meiðsli og leikbönn. Fáir nýir leikmenn hafa bæst í hópinn en Grindvíkingar hafa verið talsvert rólegri á leikmannamarkaðinum í vetur en búist var við. Vinstri bakvörðurinn öflugi Jósef Kristinn Jósefsson er horfinn á braut en hann hefur verið í gríðarlega stóru hlutverki hjá Grindvíkingum í mörg ár.

Lykilmenn: Alexander Veigar Þórarinsson og Sam Hewson. Alexander Veigar fór á kostum í Inkasso-deildinni í fyrra en hann raðaði inn mörkum og stoðsendingum. Eftir tímabil var hann verðskuldað valinn leikmaður ársins í deildinni. Hewson hefur mikla reynslu úr Pepsi-deildinni og hann verður mikilvægur á miðjunni fyrir Grindvíkinga í sumar.

Gaman að fylgjast með: Gunnar Þorsteinsson. Gunnar var í basli með ÍBV í Pepsi-deildinni árið 2015 en hann átti síðan frábært tímabil á miðjunni með uppeldisfélagi sínu Grindavík í fyrra. Það verður spennandi að sjá hann í Pepsi-deildinni á nýjan leik og hvernig hann hefur þroskast sem leikmaður.

Spurningamerkið: Nær Grindavík að halda sama öfluga sóknarleiknum áfram þegar liðið er komið deild ofar? Liðið þarf á því að halda ef fall aftur niður í Inkasso-deildinni á ekki að verða niðurstaðan í haust.

Völlurinn: Grindvíkingar eiga glæsilega stúku sem tekur 1450 áhorfendur. Grasið á vellinum sjálfum er síðan alltaf í toppstandi. Í Grindavík eru flottar aðstæður fyrir íþróttaiðkun og menn eru óhræddir við að stefna hátt.

Formaðurinn segir – Jónas Þórhallsson
„Ég var kokhraustur í viðtali á Stöð 2 í haust. Síðan var sjómannaverkfall og forsendur breyttust en það er enn sama trú í mér. Við viljum ekki vera í þessu bara til að vera með heldur setja mark okkar á þetta. Ég myndi aldrei taka á móti ellefta sæti. Það er ágætt að þeir sem leggja þetta fram hafi ekki meiri trú en ég tel okkur geta endað mun ofar. Við höfum ekki bætt miklu síðan í fyrra en það eru efnilegir strákar að koma upp. Ungu mennirnir sem vilja vera í sviðsljósinu fá tækifæri á meðan við höfum ekki styrkt liðið frekar.”

Sjá einnig:
Óli Stefán: Horfði til Conte hjá Juventus þegar ég pældi í 3-5-2
Hin Hliðin – Björn Berg Bryde
Alexander Veigar – Forfallinn hjólabrettafíkill sem kennir stærðfræði

Komnir:
Brynjar Ásgeir Guðmundsson frá FH
Milos Zeravica frá Zrinjski Mostar
Sam Hewson frá FH

Farnir:
Ásgeir Þór Ingólfsson til Hönefoss
Edu Cruz
Josiel Alves De Oliveira (Á förum)
Jósef Kristinn Jósefsson í Stjörnuna
Marko Valdimar Stefánsson til Hönefoss
Óli Baldur Bjarnason í GG

Leikmenn Grindavíkur sumarið 2017:
1 Maciej Majewski
12 Kristijan Jajalo
2 Hákon Ívar Ólafsson
4 Rodrigo Gomes Mateo
5 Gylfi Örn Öfjörð
6 Sam Hewson
7 William Daniels
8 Gunnar Þorsteinsson
9 Matthías Örn Friðriksson
10 Alexander Þórarinsson
11 Juanma Ortiz Jimenez
15 Nemanja Latinovic
16 Milos Zeravica
17 Magnús Björgvinsson
21 Marinó Axel Helgason
22 Anton Ingi Rúnarsson
23 Brynjar Ásgeir Guðmundsson
24 Björn Berg Bryde
25 Aron Freyr Róbertsson
99 Andri Rúnar Bjarnason

Leikir Grindavíkur 2017:
1. maí Grindavík – Stjarnan
8. maí Víkingur R – Grindavík
14. maí Grindavík – Víkingur Ó
22. maí ÍA – Grindavík
28. maí Grindavík – Valur
5. júní KR – Grindavík
14. júní Grindavík – FH
18. júní Grindavík – ÍBV
26. júní Breiðablik – Grindavík
9. júlí Grindavík – KA
17. júlí Fjölnir – Grindavík
23. júlí Stjarnan – Grindavík
31. júlí Grindavík – Víkingur R
9. ágúst Víkingur Ó – Grindavík
14. ágúst Grindavík – ÍA
21. ágúst Valur – Grindavík
27. ágúst Grindavík – KR
10. sept FH – Grindavík
14. sept ÍBV – Grindavík
17. sept Grindavík – Breiðablik
24. sept KA – Grindavík
30. sept Grindavík – Fjölnir

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Alexander Freyr Einarsson,
Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Kristófer Kristjánsson, Magnús Már Einarsson, Magnús Þór Jónsson.