Grindavík skellti nágrönnum sínum í Keflavík 3-1 í 1. umferð bikarkeppni kvenna í knattspyrnu á Grindavíkurvelli. Grindavík hafði mikla yfirburði og verðskuldaði sigurinn. Grindavík mætir Fylki í næstu umferð þann 28. maí á Grindavíkurvelli.
Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir kom Grindavík yfir og Rebekka Þórisdóttir bætti við örðu marki fyrir leikhlé. Fyrirliðinn Ágústa Jóna Heiðdal skoraði þriðja markið um miðan seinni hálfleik en Keflavík tókst að klóra í bakkann með einu marki.
Leikurinn lofar góðu fyrir sumarið en ungar og efnilegar stelpur að banka á dyrnar og fengu tækifæri í byrjunarliðinu eins og Guðný Eva Birgisdóttir og Rebekka Þórisdóttir.