Grindavík prófar enskan miðvörð

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingar hafa fengið enska miðvörðinn Kurtis Spencer á reynslu en þetta staðfesti Guðjón Þórðarson þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag. Spencer kom til landsins í fyrrakvöld og verður við æfingar hjá Grindvíkingum næstu dagana.

 

Spencer hefur á ferli sínum leikið í ensku neðri deildunum með AFC Wimbledon, Chesterfield, Leyton Orient og Dagenham and Redbridge að því er fram kemur á fotbolti.net

Grindvíkinga eru í leit að liðsstyrk þessa dagana en liðið hefur misst fastamenn úr liðinu í fyrra og má þar meðal annars nefna Jamie McCunnie, Jóhann Helgason og Orra Freyr Hjaltalín. Liðið hefur svo fengið tvo öfluga framherja í staðinn.