Grindavík tekur á móti Vestra í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag kl. 18:00 á Mustad-vellinum. Vestri er í 2. deild og situr þar í 6. sæti af 12 liðum. Fyrri leikjum liðanna í bikarnum lauk þannig að Vestri hafði betur gegn Kára 3-1 og Grindavík vann Aftureldingu 4-1. Kári er í 10. sæti 2. deildar og Afturelding er í 10. sæti Inkasso-deildarinnar.
Við hvetjum Grindvíkinga til að mæta á völlinn og styðja strákana áfram í 4 liða úrslit bikarsins sem fara fram í lok júní.