Grindavík landaði fyrsta sigri sumarsins gegn Stjörnunni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavíkurkonur lönduðu fyrsta sigri sumarsins og skoruðu jafnframt fyrstu 3 mörkin sín þetta tímabilið, þegar þær lögðu Stjörnuna í Garðbæ í gær, 2-3. Tvíburarnir Rio og Steffi Hardy komu loks inn í liðið í gær en þær höfðu beðið eftir að félagaskiptin þeirra kláruðust á Englandi. Þær létu strax að sér kveða en Rio skoraði 2 mörk og lagði upp eitt. Greinileg vítamínsprauta þarna á ferðinni fyrir liðið og vonandi gefur þessi sigur góð fyrirheit um það sem koma skal.

Umfjöllun fótbolta.net um leikinn

Myndasafn fótbolta.net

Viðtal við Ray eftir leik: