Grindavík í úrslit Fótbolta.net mótsins

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík tryggði sér sigur í A-riðli Fótbolta.net mótsins á föstudaginn, þegar liði sigraði HK 2-1. HK dugði jafntefli til að vinna riðilinn en Rene Joensen gerði útum drauma HK og skoraði bæði mörk Grindavíkur. Grindavík mætir Stjörnunni í úrslitaleik mótsins næstkomandi laugardag kl. 13:00 í Kórnum.

Hér má lesa umfjöllun Fótbolta.net um leikinn og hér má lesa viðtal Fótbolta.net við fyrirliðann Gunnar Þorsteinsson.