GRINDAVÍK Í ÚRSLIT BIKARSINS!

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík lagði granna sína Keflavík að velli í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ í dag með eins stigs mun, 84-83. Aaron Broussard tryggði Grindavík sigurinn þegar hann nýtti annað af tveimur vítum sínum 5,46 sekúndum fyrir leikslok. Grindavík leikur því til úrslita í bikarnum í Laugardalshöllinni 16. febrúar næstkomandi.

Grindvíkingar eru þar með komnir í Höllina í þriðja sinn á síðustu fjórum árum og í sjöunda skipti frá upphaf. Grindavík mætir annaðhvort Snæfell eða Stjörnunni í úrslitaleiknum en þau mætast í seinni undanúrslitaleiknum í Stykkishólmi í kvöld.

Grindvíkingar voru mun sterkari fyrir hlé, unnu líka síðustu fjórar mínútur fyrri hálfleiksins 14-4 og voru fjórtán stigum yfir yfir í hálfleik, 45-31. Broussard var frábær í fyrri hálfleiknum og var kominn með 17 stig í hálfleik.

Keflvíkingar fengu góða hálfleiksræðu frá þjálfara sínum Sigurði Ingimundarsyni og unnu sig inn í leikinn á ný í þriðja leikhlutanum sem Keflavíkurliðið vann 30-21.

Lokaleikhlutinn var síðan æsispennandi. Keflvíkingar náðu hinsvegar bara að jafna leikinn margoft en tókst aldrei að komast yfir. Aaron Broussard keyrði upp að körfunni í lokasókn Grindavíkur og kom sér á vítalínuna þar sem hann skoraði síðan sigurstigið.

Stig Grindavíkur: Aaron Broussard 25, Þorleifur Ólafsson 16, Jóhann Árni Ólafsson 15, Samuel Zeglinski 12, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 8, Ómar Örn Sævarsson 4, Daníel Guðmundsson 2, Davíð Ingi Bustion 2.