Níunda umferð 1.deild karla heldur áfram í kvöld þegar m.a. Fjölnir tekur á móti Grindavík í Grafarvoginum klukkan 19:15. Grindavík situr með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar og ætla sér að halda því.
Umferðin hófst í gær með leik Leiknir og Selfoss. Selfoss er á siglingu því þeir unnu Leikni 4-2. Aðrir leikir í kvöld eru Víkingur – Tindastóll og KA – Völsungur.
Grindavík og Fjölnir hafa mæst 11 sinnum síðustu ár í leikjum á vegum KSÍ. Fjölnir er með yfirhöndina þar því þeir hafa sigrað í 5 leikjum af 11, 3 jafntefli og Grindavík sigrað 3. Liðin mættust í vetur í Lengjubikarnum þar sem Jóhann Helgason skoraði eina mark leiksins á 30 mínútu.