Grindavík hlaut silfur í Fótbolta.net mótinu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindvíkingar náðu ekki að fylgja eftir góðum árangri í riðlakeppni Fótbolta.net mótsins í úrslitaleik mótsins á laugardaginn, en liðið tapaði þar fyrir Stjörnunni, 1-0. Eina mark leiksins kom á 29. mínútu og voru Stjörnumenn heldur líklegri en hitt til að bæta við þangað til á 60. mínútu þegar Jósef Kristinn Jósefsson leikmaður Stjörnunnar fékk rautt spjald. Grindavík náði þó ekki að jafna leikinn og silfurverðlaun á mótinu staðreynd.

Umfjöllun Fótbolta.net um leikinn

Viðtal við Óla Stefán þjálfara eftir leik

Myndaveisla Fótbolta.net