Grindavík heimsækir Fjölni í kvöld kl. 19:15

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstúlkur tryggðu sér áfram í úrslitaeinvígi 1. deild kvenna í körfuknattleik með sigri á Þór Akureyri í síðustu viku. Fyrsti leikur þeirrar rimmu fer fram í kvöld á heimavelli Fjölnis og hefst hann kl.19:15. Stuðningsmenn Grindavíkur eru hvattir til að fjölmenna í Dalhús í Grafarvogi og styðja stelpurnar til sigurs. Það er mikið í húfi að vinna þessa viðureign, það lið sem vinnur 3 leiki tryggir sér sæti í úrvalsdeild að ári. Grindavík á sannarlega heima þar. 

Áfram Grindavík! 

Mynd: www.karfan.is

Næstu leikir: