Grindavík fær markahæsta leikmanninn frá Ægi

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir sumarið í 1. deildinni en félagið hefur samið við framherjann Will Daniels. Þetta staðfesti Óli Stefán Flóventsson þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net. Will skoraði tíu mörk í sautján leikjum í 2. deildinni með Ægi í fyrra. Hann var markahæstur hjá Ægi og átti stóran þátt í að liðið hélt sæti sínu í deildinni.

Hinn 25 ára gamli Will er frá Bandaríkjunum en hann kom til Ægis fyrir síðasta tímabil.

 

Mynd og texti: Fótbolti.net