Grindavík dróst gegn Stjörnunni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Í gær var dregið í 8-liða úrslit í bikarkeppni kvenna í körfubolta. Grindavík var í pottinum og mætir Stjörnunni, leikurinn fer fram 21.- 23. janúar. Bæði liðin eru í 1. deild þar sem þau verma toppsætin, Grindavík í því fyrsta. Liðin mættust fyrir mánuði í deildinni þar sem Grindavík fór með sigur af hólmi, 76-53.

 

Aðrir leikir í bikarkeppni kvenna eru:
Njarðvík –  Keflavík
Fjölnir – Snæfell
Haukar – Hamar

Karlaliðið féll úr bikarnum og var því ekki í pottinum.