Grindavík er aftur komið í deild þeirra bestu í kvennakörfunni eftir að liðið tryggði sér í gærkvöld sæti í Dominos deildinni næsta tímabil. Liðið vann Fjölni í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna og sló þar með Grafarvogsliðið úr leik. Karfan.is fjallaði um úrslit gærkvöldsins á vef sínum og birti skemmtilega myndaseríu af liðinu.
Fjölnir varð deildarmeistari í 1. deild kvenna en lið Grindavíkur var sterkara í úrslitakeppninni. Grindavík hefur verið í 1. deild kvenna síðustu tvö tímabil og byggt upp sterkt lið á heimakonum sem verður spennandi að fylgjast með á komandi leiktíð í deild þeirra bestu.