Grindavík krækti sér á stig á erfiðum útivelli með því að gera jafntefli gegn FH í Kaplakrika 1-1 í 1. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Þrátt fyrir að FH-ingar hefðu verið meira með boltann gekk þeim erfiðlega að brjóta vel skipulaga Grindavíkurvörn á bak aftur og því voru úrslitin nokkuð sanngjörn.
Í lið Grindavíkur vantaði m.a. Alexander Magnússon og Magnús Björgvinsson sem báðir eru meiddir.
Í umfjöllun á leikinn á Visi segir:
„Grindavík mætti til leiks með fimm manna varnarlínu og sat djúpt og freistaði þess að sækja hratt og láta FH um að stjórna spilinu. Grindavík gaf fá færi á sér og vantaði á köflum hraða og hugmyndaauðgi hjá FH í sóknarleikinn en engu að síður náði liðið að skapa sér nokkur færi en oftar en ekki varði Óskar Pétursson það sem á markið kom.
Atli Guðnason gladdi helst augað með fínum tilþrifum í fyrri hálfleik en Grindvíkingum tókst að loka vel á sóknarleik FH í seinni hálfleik og fátt markvert gerðist áður en miðvörðurinn Loic Mbang Ondo skoraði af stutt færi á 73. mínútu eftir flotta sendingu frá Scott Ramsay.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH brást við með tvöfaldri skiptingu og hún skilaði sér með marki á 84. mínútu þegar Björn Daníel Sverrisson skoraði úr vítaspyrnu sem Ólafur Páll Snorrason fékk með því að skalla boltann í hönd Rays Anthony Jónssonar.
FH átti mun fleiri skot að marki en náði ekki að nýta þau færi sem liðið fékk. Grindavík gefur ekki mörg færi á sér og miðað við leikinn í kvöld verður erfitt að leika gegn liðinu. Liðið er skipulagt liggur vel til baka og sækir hratt með líkamlega sterka framherja.
Guðjón: Þetta var fyrsta útgáfan af Grindavík í sumar
“Hefðir þú spurt mig í gær hvort ég hefði þegið jafntefli þá hefði ég sagt já en ég hefði getað hugsað mér að halda þetta út og mér fannst það harður dómur að fá á okkur víti undir þessum kringumstæðum. Það er meter á milli manna og það er nýbúið að tala um þetta með dómurunum hvort það sé ásetningshendi eða ekki ásettningshendi. Mér fannst þetta harður dómur en það segir sína sögu að þeir þurftu víti til að koma sér inn í leikinn,” sagði Guðjón Þórðarson þjálfari Grindavíkur í leikslok.
“Ég var ágætlega sáttur við það sem við vorum að reyna að framkvæmi í grófum dráttum. Ég var heilt yfir ánægður með varnarleikinn. Samt voru FH-ingar að fá tvö, þrjú færi þar sem þeir hefðu getað gert betur, sama var með okkur. Pape var einn í gegn og tvisvar þrisvar hefði ég viljað að við værum aðeins rólegri á boltann í sóknartilburðum okkar. Það kemur. Þetta er erfiður útivöllur og heilt yfir er ég ánægður með að fá stig hérna.
“Ég er búin að sjá liðin í deildinni og ég veit að við getum farið og látið finna fyrir okkur hvert sem við förum og ég held að þetta hafi verið ágætis áminnig um að við meinum það sem við ætlum að gera með að fara í Kaplakrika og fara ekki tómhentir í burtu,” sagði Guðjón en lið hans varðist vel og sótti hratt með löngum spyrnum og vantaði stundum að liðið kæmi Scott Ramsay meira inn í spilið.
“Við sjáum að Scotty sýndi galdrana sína úti í horni þegar við skorum. Hann er baneitraður og skemmtilegur knattspyrnumaður en við þurfum að róa okkur á boltanum. Leikkerfið er þannig að það eru allir varnarmenn þegar við erum boltalausir. FH-ingar færa boltann ágætlega til en það var ekki mikið um stórar opnanir á okkur. Það skiptir máli að leika agaðan varnarleik og það er mikil vinna sem felst í því ef það er gert vel og Grindavík hefur fengið mikið af mörkum á sig síðustu ár og það er eitthvað sem verður að stoppa. Þetta er fyrsta útgáfan að því og saman munum við öðlast meiri tiltrú á því sem við erum að gera og öðlast meiri ró á boltann og bæta sóknarleikinn. Það er til staðar ákveðnir möguleikar í þessu liði og framherjarnir eru hættulegir. Við erum eitt af fáum liðum á landinu sem spilar með tvo sentera. Það gera það ekki mörg lið í dag,” sagði Guðjón sem reiknar með að styrkja liðið fyrir leikinn gegn Keflavík á fimmtudaginn.