Góður árangur á afmælismóti JSÍ

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Í helgina fór fram afmælismót Júdósambands Íslands fyrir aldurshópinn 11-19 ára. Þrír Grindvíkingar tóku þátt og kræktu þeir allir í verðlaun.

Marcin Ostrowski fékk silfur í -55kg flokki U15.

Guðjón Sveinsson fékk silfur í -66kg flokki í U20.

Sigurpáll Albertsson fékk gull í -90kg flokki í U20.

Marcin keppti í -55 kg 13-14 ára og voru þeir 4 í flokknum. Hann vann 2 glímur á kasti en tapaði einni á stigum og endaði þar með í öðru sæti.

Guðjón keppti í -66 kg 17-19 ára, þar voru 3 í flokknum. Hann vann fyrstu glímuna á kasti en tapaði seinni glímunni á fastataki.

Sigurpáll keppti í -90 kg 17-19 ára, þar var sameinað -81 og -90kg flokkana og í sameinaða flokknum voru 3 keppendur. Hann vann fyrri glímuna á kasti og seinni á armlás.