Þann 4. maí sl. fóru 17 krakkar á aldrinum 11-15 ára á sitt fyrsta fimleikamót. Haldið var á Laugarvatn þar sem fjögur önnur lið í sambærilegum stærðar- og getuflokki kepptu á trampólíni og loftdýnu. Krakkarnir skemmtu sér frábærlega og ekki skemmdi fyrir að þau unnu 4 gull, 3 silfur og 5 brons.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hópinn með þjálfaranum sínum, Díönu Karen Rúnarsdóttur.
Dagana 9.-10. maí munu krakkarnir ganga í hús að safna áheitum vegna maraþons þar sem þau ætla að æfa fimleika í 12 tíma, frá kl. 20:00 föstudaginn 11. maí til kl. 08:00 laugardaginn 12 maí og safna fyrir tækjakaupum. Hvetjum við alla til að taka vel á móti krökkunum okkar!