Glæsileg uppskeruhátíð 3. og 4. flokks

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Uppskeruhátíð 3. og 4. flokks knattspyrnudeildar UMFG fór fram á dögunum. Hún var vel sótt af iðkendum og ekki síst foreldrum. Grétar Valur Schmidt formaður unglingaráðs fór yfir starf síðasta árs og þakkaði öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn.

Kökuhlaðborðið klikkaði ekki og verður það bara glæsilegra með hverju árinu sem er að líða. Ægir Viktorsson yfirþjálfari yngri flokkanna stjórnaði hátíðinni. Veitt voru ýmis verðlaun:

4.fl kvk
Mikilvægustu leikmennirnir:
– Dröfn Einarsdóttir
– Viktoría Líf Steinþórsdóttir
Mestu framfarir:
– 11 manna : Dagbjört Arnþórsdóttir
– 7 manna: Silja Rós Viðarsdóttir
Besta ástundun:
– 11 manna: Kristín Anítudóttir
– 7 manna: Emilý Klemensdóttir

4.fl kk
Mikilvægustu leikmennirnir:
– Hilmar Andrew McShane
– Ingi Steinn Ingvarsson
Mestu framfarir:
– Ævar Andri Öfjörð
– Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
Besta ástundun:
– Sigurjón Rúnarsson

3.fl kvk
Mikilvægasti leikmaður:
– Helga Guðrún Kristinsdóttir
Mestu framfarir:
– Svava Lind Kristjánsdóttir
Besta ástundun:
– Guðný Dröfn Guðbjartsdóttir

3.fl kk
Viðurkenning fyrir dugnað og þrautseigju
– Hlynur Ægir Guðmundsson
– Marinó Axel Helgason
– Magnús Ari Stefánsson

Sveinn þjálfari ásamt verðlaunahöfum í 3. flokki stúlkna.

Ægir þjálfari ásamt verðlaunahöfum í 3. flokki drengja.

Elínborg þjálfari ásamt verðlaunahöfum í 4. flokki stúlkna.

Ægir þjálfari ásamt verðlaunahöfum í 4. flokki drengja.

Grétar formaður unglingaráðs fór yfir starfsemi unglingaráðs.

Ægir yfirþjálfari yngri flokkanna stýrði samkundinni af fádæma yfivegun.