Grindavík mætir Breiðabliki á morgun í sínum fyrsta leik í Pepsi Max-deildinni þetta fótboltasumar. Leikurinn hefst kl. 14:00 en stuðningsmenn ætla að hittast um kl. 13:00 á Salthúsinu og hita upp stemninguna, allir velkomnir.
Túfa þjálfari meistaraflokks mun mæta og fara yfir uppstillingu liðsins en einnig fer fram sala árskorta. Einstaklingskort kostar 12.000 krónur og hjónakort 18.000 krónur. Frítt er fyrir 16 ára og yngri.
Bein textalýsing verður á vefnum fótbolti.net fyrir þá sem vilja fylgjast með gangi leiksins en komast ekki á völlinn.
Meðfylgjandi mynd var tekin í gær, á sumardaginn fyrsta en þá hittust í Hópinu iðkendur, foreldrar, stjórn, unglingaráð, kvennaráð og þjálfarar deildarinnar og áttu saman mjög svo skemmtilega stund í morgunsárið. Mikil tilþrif sáust á völlunum fjórum segir á Facebook síðu Knattspyrnudeildar UMFG en þar segir “Gleðin var við völd í bland við keppnisskapið hjá krökkunum sem ætluðu svo sannarlega að vinna flottu meistaraflokksleikmennina okkar og helst rústa liði mömmu og pabba. Frábær skemmtun og eftir grillaðar pulsur og svala fóru allir brosandi út í sumarið. Vonandi verður þetta bara að árlegum viðburði héðan af. Þökkum ykkur kærlega fyrir komuna.”