Grindvíkingar voru nokkuð nálægt því að stela heimavallarréttindum af Tindastóli í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla, en framlengja þurfti leikinn. Jafnt var á öllum tölum eftir 40 mínútur, staðan 81-81. Dagur Kár hafði komið Grindvíkingum 3 stigum yfir þegar 21 sekúnda var eftir af leiknum og má segja að okkar menn hafi á þeim tímapunkti verið með sigurinn í höndunum, en í viðtali við Vísi eftir leik sagði Jóhann Þór þjálfari að Grindvíkingar hefðu kastað leiknum frá sér.
Tindastóll náði svo að jafna leikinn með tveimur körfum, fyrst setti Pétur Rúnar niður 1 víti af 2 en heimamenn náðu sóknarfrákastinu, fá þriggja stigaskot úr horninu sem klikkar en Sigtryggur Arnar sveif manna hæst í gegnum teiginn og jafnaði leikinn þegar 11,7 sekúndur voru til leiksloka. Mögulega hefði mátt dæma sóknarvillu þar sem Arnar ýtti Ingva Þór hressilega frá sér til að komast að körfunni en dómararnir sáu ekkert athugavert við þessa flugferð.
Grindvíkingar tóku leikhlé og uppúr því fékk Jóhann Árni galopið þriggjastiga skot en ofan í vildi boltinn ekki. Framlenging því niðurstaðan þar sem Stólarnir reyndust ögn sterkari, lokatölur 96-92. Naumt tap staðreynd en ef Grindvíkingar spila af sömu hörku og ákafa í þeim leikjum sem eftir eru er ljóst að þeir eiga góðan möguleika á að leggja Stólana þrisvar sinnum og tryggja sig áfram í 4-liða úrslit.
Dagur Kár og Bullock voru stigahæstir Grindvíkinga, með 26 og 25 stig og Dagur bætti við 8 stoðsendingum. Sigurður Gunnar Þorsteinsson var einnig drjúgur, setti 19 stig og tók 14 fráköst.
Hér má horfa á leikinn í heild sinni