Frábær þátttaka í Skálamóti 3

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Það var frábær mæting í þriðja Skálamót GG í dag. 119 kylfingar voru skráðir til leiks. Í upphafi var rigninga og fremur kalt í veðri en þegar leið á daginn léti til og hlýnaði. Völlurinn var í einu orði sagt frábær, flatir eins og þær gerast bestar, hvað þá á þessum árstíma og kylfingar kunnu svo sannarlega að meta aðstæðurnar, þó skorið væri æði misjafnt.

 

 Orðstýr og umfjöllun um völlin hefur einnig aukist samhliða þessum draumaaðstæðum. Margir sem þátt tóku hafa verið með í öllum skálamótunum til þessa, stærstur hluti gesta frá öðrum klúbbum. Það eitt segir sína sögu um aðstæður. Rafn Stefán Rafnsson GO sigraði í punktakeppninni á 39 punktum. Þess má geta að Rafn lék einnig á fæstum höggum í mótinu, 70 höggum (einu undir pari) en Rafn hafði þegar unnið til verðlauna með forgjöf og kom það það í hlut Kristins Sörensen að fá verðlaun án forgjafar fyrir 71 högg. Í öðru sæti varð Þórir Guðmundsson GKG á 38 punktum líkt og Kristinn Sörensen GG og Atli Már Grétarsson en þar sem Kristinn fékk verðlaun fyrir besta skorið þá er það Atli sem hlýtur þriðju verðlaun í punktakeppninni. 

Golfklúbburinn þakkar frábæra þátttöku í þessu styrktarmóti og góð orð sem kylfingar höfðu um völlinn að segja. Við vonumst til að sjá sem flesta kylfinga á Húsatóftavelli í sumar og orð kylfinga gefa góð fyrirheit um það sem koma skal. Markmiðið er að halda fleiri skálamót ef veðurguðirnir verða okkur hliðhollir. Nánari úrslit má sjá á www.golf.is